Skip to main content

Fréttir

Átaksverkefni í rannsóknum á handritasafni Árna Magnússonar

Kynningarmynd fyrir átaksverkefni í rannsóknum á handritasafni Árna Magnússonar.

Dönsk og íslensk stjórnvöld hafa gert með sér samkomulag um að fjármagna í sameiningu þriggja ára átaksverkefni sem miðar að því að efla rannsóknir á handritum í safni Árna Magnússonar og kynna þau.

Á tímabilinu 2026–2028 verður fjármunum varið til styrkja fyrir vísindafólk til rannsókna á handritum í handritasöfnunum í Kaupmannahöfn og Reykjavík, til tveggja alþjóðlegra ráðstefna sem haldnar verða í Reykjavík og Kaupmannahöfn, auk ýmissa sameiginlegra verkefna sem lúta að kynningu og stafrænni miðlun safnsins.

Í stýrihópi verkefnisins eru Lena Rohrbach formaður, Anne Overgaard Jørgensen, Hallgrímur J. Ámundason, Anne Mette Hansen og Guðrún Nordal.

Ráðstefna um skil á menningararfi

Fyrri ráðstefna verkefnisins fer fram í Eddu 1.–2. desember 2026 og fjallar um handritamálið í alþjóðlegu samhengi og með vísan í alþjóðlegar deilur um skil á menningararfi. Dagskráin verður kynnt í byrjun nóvember.

Seinni ráðstefnan fer fram í Kaupmannahöfn við lok átaksverkefnisins.

Styrkir til handritarannsókna 2026

Árlega verða veittir styrkir til vísindafólks til rannsókna á handritum í söfnunum tveimur. Í forgangi verða verkefni þeirra rannsakenda sem eru á fyrri stigum ferils síns.

Árið 2026 hlutu eftirfarandi rannsakendur styrk til rannsókna við Árnastofnun í Reykjavík:

  • Adrián Israel Rodríguez Avila, Bretlandi
  • Sabine Heidi Walther, Þýskalandi
  • Maria Katarzyna Klejnowska, Póllandi
  • Lea Debora Pokorny, Svíþjóð
  • Madita Knöpfle, Sviss
  • Hadrian Harms, Sviss
  • Lionel Dominique Perabo, Frakklandi
  • Oscar Agnello, Ítalíu
  • Dr. Clare Mulley, Bretlandi
  • Alessia Angelini, Ítalíu
  • Alice Fardin, Ítalíu