Skip to main content

Fréttir

Eintal sálarinnar við sjálfa sig

Háskólaútgáfan gaf nýverið út bókina Eintal sálarinnar við sjálfa sig eftir Þjóðverjann Martin Moller (1547‒1606). Bókin telst til svokallaðra íhugunarrita, þar sem píslargöngu Krists eru gerð skil, hún túlkuð og íhuguð.

Arngrímur lærði Jónsson (1568‒1648) þýddi ritið í lok 16. aldar en það var fyrst prentað 1599. Ritið er á meðal elstu þýddu guðræknirita í lútherskum sið á Íslandi og eitt hið vinsælasta um aldir, enda hafði það mikil áhrif á íslenskar bókmenntir síðari alda, trúarlíf og hugarfar. Heimildir eru fyrir því að ritið hafi verið til á liðlega þriðja hverju heimili í landinu um miðbik 18. aldar. Það hefur nú verið gefið út með nútíðarstafsetningu.

Þórunn Sigurðardóttir bjó til útgáfu.