Skip to main content

Fréttir

Ex Libris – ný tónleikaröð í Eddu

Ex Libris tónleikaröðin.

Á haustdögum hefst ný tónleikaröð, Ex Libris, sem Árnastofnun stendur fyrir.

Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.

Bókasafnið býður upp á að þar er hægt að hlýða á tónlistarflutning í mikilli nánd við flytjendur en fjöldi áhorfenda getur að hámarki verið 50 manns.

Að tónleikunum loknum er upplagt að setjast niður og fá sér hressingu á kaffihúsinu Ými. Einnig er gaman að skoða handritasýninguna Heimur í orðum fyrir eða eftir tónleika.

Merki Ex libris tónleikaraðarinnar.
Valgerður Halldórsdóttir

Ex Libris er latína og þýðir „úr bókasafni“. Hér áður fyrr tíðkaðist að eigendur bókasafna merktu bækur sínar á titil- eða saurblöðum með svokölluðu Ex Libris-merki. Þá var stimplað eða skrifað „Ex Libris“ og svo var nafni eiganda bókarinnar bætt aftan við. Þannig væri bók úr safni Eddu „Ex Libris Eddae“.

Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Ex Libris er Valgerður G. Halldórsdóttir.

Fimm tónleikar eru á dagskrá þessa fyrsta starfsárs Ex Libris og verða fyrstu tónleikarnir 19. september.

Skoða dagskrá tónleikaraðarinnar