Skip to main content

Fréttir

Fundur Nafnfræðifélagsins: Friðlandið að Fjallabaki

­Nafnfræðifélagið heldur seinni fræðslufund misserisins laugardaginn 11. nóv. nk. í stofu 202 í Odda, húsi Háskóla Íslands, og hefst kl. 13.15.

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina:

Nafngiftir í Friðlandinu að Fjallabaki.

Ólafur Örn Haraldsson.

Í erindinu verður sjónum beint að Friðlandinu að Fjallabaki á Landmannaafrétti. Örnefni þar eru tiltölulega ný vegna þess að aðeins er liðin rúmlega hálf önnur öld frá því að ferðir hófust þar að nokkru marki. Fram undir miðja 19. öld var aðeins smalaður hluti svæðisins m.a. vegna ótta við útilegumenn. Í fyrirlestrinum verða örnefnin greind eftir uppruna og sýndar myndir því til stuðnings en Torfajökulsöskjuna og svæðið í nágrenni Landmannalauga telja margir eitt fegursta svæði landsins.

 

Ólafur Örn skrifaði árbók Ferðafélagsins 2010 og fjallaði hún um Friðlandið að Fjallabaki.

Fundurinn er ókeypis og öllum opinn.