Skip to main content

Fréttir

Heimsókn íslenskukennara til Kína

Árlegur fundur íslenskukennara sem starfa við erlenda háskóla var haldinn í Peking á dögunum. Þess má geta að reglulegir ársfundir íslenskra sendikennara erlendis hafa verið haldnir síðan á 8. áratugnum þegar íslensk stjórnvöld hófu að styðja við kennslu í íslensku við ýmsa háskóla erlendis. Að þessu sinni heimsótti hópur íslenskukennara Háskóla erlendra fræða í Peking (e. Beijing Foreign Studies University, BFSU) þar sem íslenska hefur verið kennd síðan 2005 og var þetta fyrsta heimsóknin til Asíu í sögu sendikennarafunda. Háskólinn í Peking skipulagði fjölbreytta dagskrá, þ. á m. málþing um áhrif Evrópu á kínverskar nútímabókmenntir, bókmenntaskipti á milli Kína og Íslands, þýðingar á kínverskri heimspeki og pallborðsumræður með kennurum í Norðurlandamálum. Þar var m.a. fjallað um málakennslu á tímum gervigreindar og áskoranir sem tengjast henni. Fulltrúar nemenda úr Norðurlandadeild BFSU tóku einnig þátt í mjög svo fjölbreyttum og fróðlegum umræðum. Í framhaldi var haldinn fundur íslenskukennara þar sem rædd voru m.a. málefni sem varða stuðning íslenskukennslu við erlenda háskóla og ýmsar aðgerðir sem e.t.v. gætu hjálpað til við að hvetja fleiri nemendur við erlenda háskóla til íslenskunáms. Í lok fundar var hópnum boðið að heimsækja sendiráð Íslands í Peking þar sem rætt var um mikilvægi samskipta á milli Kína og Íslands, einkum á sviði viðskipta, menningar og tungu og ekki síst menntunar sem hefur áhrif á þróun á ýmsum sviðum í samfélagi beggja þjóða og sem sífellt þarf að efla, meira nú en fyrr.

Hópur íslenskukennara ásamt fulltrúa Árnastofnunar.

Frá árinu 2005 hafa þrjátíu og átta nemendur útskrifast með BA-próf í íslensku frá íslenskuskor Háskóla erlendra fræða í Peking. Tekið er inn í námið fjórða hvert ár og þegar nemendur eru á öðru ári gefst þeim kostur á að fara til Íslands í skiptinám í eitt ár og snúa svo heim reynslunni ríkari og ljúka þar námi. Í BA-námi í Peking eru í ár skráðir ellefu nemendur sem stefna að útskrift á næsta ári. Íslenskuskor er stærsta málaskor innan Norðurlandadeildarinnar við háskólann í Peking. Í Kína er íslenska einnig kennd við tvo aðra háskóla, Shijiazhuang-háskóla og Nningbo-háskóla, en Háskóli erlendra fræða í Peking er eini háskólinn sem býður upp á námsleið til BA-prófs í íslensku, hinir tveir háskólarnir hafa boðið af og til upp á stök íslenskunámskeið.

Ársfundir sendikennara eru haldnir við erlenda háskóla og gefa þannig kennurum kost á að heimsækja og bera saman aðrar stofnanir sem stuðla að miðlun íslenskrar sögu, listar og menningar. Íslensk stjórnvöld styðja núna við kennslu í íslensku sem erlendu máli við sautján erlenda háskóla í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur umsjón með kennslunni fyrir hönd stjórnvalda.

Fulltrúi Árnastofnunar, Branislav Bédi, sem hefur umsjón með íslenskukennslu erlendis, heimsótti einnig Norræna setrið við Fudan-háskóla í Sjanghæ þar sem mikilvægustu rannsóknir á sviði Norðurlandafræða eru stundaðar og þverfagleg námskeið um málefni sem tengjast Norðurlöndum eru haldin reglulega.