Skip to main content

Fréttir

Hrafns saga Sveinbjarnarsonar á spænsku

Hrafns saga Sveinbjarnarsonar, sem hingað til hefur ekki verið gefin út á spænsku, er einn þeirra texta sem finna má í Sturlunga sögu sem var rituð af ýmsum höfundum á 13. öld. 

Hrafns saga, sem ásamt fleiri sögum í safninu tilheyrir bókmenntagrein samtíðarsagna, segir frá héraðshöfðingjanum, lækninum og Jakobsleiðarpílagríminum Hrafni Sveinbjarnarsyni. Sagan er sérstaklega mikilvæg vegna þess að hún varpar ljósi á fjölmarga þætti íslensks samfélags á 12. og 13. öld, svo sem daglegt líf, læknisfræðilega þekkingu, trúarviðhorf og pólitísk átök.

Í þessu samhengi má líta á söguna sem mikilvæga heimild, nánast þjóðfræðilega að eðli, fyrir rannsóknir á þessu tímabili í íslenskri og evrópskri sögu.

Í þessari útgáfu er sagan birt með hliðsjón af tveimur helstu gerðum hennar, svonefndum A- og B-gerðum, og jafnframt í tvítyngdri útgáfu á forníslensku og spænsku í þýðingu og ritstjórn Mariano González Campo sem hlaut Snorra Sturlusonar-styrkinn árið 2024. Útgáfan hefur verið gefin út af Háskólanum í Santiago de Compostela á Spáni.

Frekari upplýsingar hér (á spænsku).