Ný vefútgáfa Íslendingasagna er nú í bígerð og hafa tveir nemar unnið að útgáfunni undanfarna mánuði. Styrkur fékkst til verkefnisins úr Nýsköpunarsjóði námsmanna síðasta vor og voru þau Rick van Staten, nemi í víkinga- og miðaldafræðum við HÍ, og Sóley Erla Jónsdóttir Líndal, nemi í grafískri hönnun við LHÍ, fengin til starfa.
Með nýrri vefútgáfu verður komið til móts við nýja lesendur Íslendingasagna. Textarnir verða birtir með nútímastafsetningu og þeim fylgja ýmsar skýringar og aukaefni.
Auk hefðbundinna orðskýringa verða birtar heilar, umorðaðar málsgreinar, kort og ættartré til stuðnings. Enn fremur verður lögð áhersla á að miðla fræðilegri umfjöllun um sögurnar á viðeigandi stöðum í textunum.
Stefnt er að því að þrjár fyrstu sögurnar verði gerðar aðgengilegar í prufuútgáfu á næsta ári og fleiri sögum síðan bætt við jafnt og þétt.
Umsjónarmenn útgáfunnar fyrir hönd Árnastofnunar eru Hjalti Snær Ægisson, sem ritstýrir skýringum og stoðefni, og Trausti Dagsson, sem sér um forritun.