Skip to main content

Fréttir

Jóhannes B. Sigtryggsson ráðinn rannsóknarlektor

Dr. Jóhannes B. Sigtryggsson hefur verið ráðinn rannsóknarlektor á málræktarsviði við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum frá 1. september 2016. Hann hefur verið verkefnastjóri á sviðinu frá árinu 2006 og er nú með starfsstöð að Laugavegi 13.

Rannsóknir Jóhannesar hafa einkum verið á sviði stafsetningar, málhreinsunar, málsögu og handritafræði. Hann ritstýrði bókinni Handbók um íslensku (2011) og er ritstjóri Stafsetningarorðabókarinnar og Málfarsbankans. Hann er ritari Íslenskrar málnefndar.

Doktorsrit Jóhannesar, Málið á Ævisögu Jóns Steingrímssonar (2011), fjallar um málið á sjálfsævisögu Jóns Steingrímssonar (1728–1791) eldklerks.

Samstarfsfólk Jóhannesar hjá stofnuninni samgleðst honum á þessum tímamótum og hyggur á áframhaldandi gott samstarf til framtíðar.

 

Jóhannes B. Sigtryggsson.