Þýska fræðiritaforlagið DeGruyter hefur gefið út Reflections of Traditional Oral Memory in the Eddas and Sagas eftir Gísla Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun. Í bókinni endurskoðar Gísli forsendur rannsókna á fornbókmenntum og les eddurnar og fornsögurnar sem spegilmynd lifandi munnlegrar hefðar fremur en sem skapandi verk rithöfunda.
Hann skoðar hvernig elíta skálda og lögmanna beitti hefðbundinni minnistækni sem vísaði í umhverfið nær og fjær – og miðlaði þekkingu á fortíðinni og hugmyndum um heiminn. Rýnt er í tengsl við gelíska menningu, fjallað um Völuspá og Njálu og sýnt hvernig goðsögurnar eru sviðsettar „á himni“.
Þá lýsir Gísli hlutverki Snorra Sturlusonar sem brautryðjanda í að nýta sér bókmenninguna og varpar fram nýjum hugmyndum um aldur Íslendingasagna. Í lokaköflunum er reifað hvernig Sturla Þórðarson mótaði minningar um fortíðina í ljósi samtíðar sinnar – og þar með skilning okkar sem á eftir komu.