Á þriggja mánaða fresti verða handritaskipti á sýningunni Heimur í orðum og nú á mánudaginn bárust spennandi nýir gripir inn á sýninguna.
Nokkur merkileg handrit sem nú eru til sýnis
Hið svonefnda Kringlublað er það eina sem eftir stendur af handritinu Kringlu sem ritað var um 1260 en afgangurinn varð eldi að bráð í Kaupmannahafnarbrunanum árið 1728. Kringlublaðið bjargaðist vegna þess að þegar handritið var í Svíþjóð á 17. öld var það skrifað upp og þetta blað skorið úr því. Handritið innihélt texta af Heimskringlu Snorra Sturlusonar.
Konungsbók Snorra-Eddu er eitt af aðalhandritum textans og það sem flestar útgáfur Snorra-Eddu eru prentaðar eftir. Nafnið kemur til af því að Brynjólfur Sveinsson, biskup í Skálholti, sendi það Friðriki III. Danakonungi að gjöf 1662. Bókin var varðveitt í Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn þar til árið 1985 að hún var aftur afhent Íslendingum.
Í handriti sem stundum er kallað Eggertsbók, því að það var lengi í eigu Eggerts Hannessonar hirðstjóra í Bæ á Rauðsandi, eru sögur af frægum útlögum: Gretti Ásmundarsyni, Gísla Súrssyni og Herði Grímkelssyni. Aftan við Grettis sögu var kvæðið Grettisfærsla sem líklega hneykslaði svo einhvern eiganda að hann lét skafa það burt.
Nánar um öll handrit á sýningunni á sýningarvefnum.