Skip to main content

Fréttir

Ný miðstöð Vestur-Íslendinga í Norður-Dakóta

Heimsókn Icelandic Roots í Eddu. Á myndinni eru Sunna Furstenau, Cathy Josephson og Doug Hanson, ásamt Guðrúnu Nordal og Gísla Sigurðssyni.

Á dögunum fengum við góða gesti frá Bandaríkjunum. Vestur-Íslendingafélagið Icelandic Roots stendur fyrir byggingu menningarhúss í bænum Mountain í Norður-Dakóta, en Mountain mætti kalla miðstöð Vestur-Íslendinga á svæðinu. Eftir tvö ár verður haldið upp á 150 ára landnám Íslendinga þar um slóðir. 

Fulltrúar félagsins, Sunna Furstenau, stofnandi Icelandic Roots, Cathy Josephson frá Vopnafirði og Doug Hanson frá Virginíu, komu í Eddu og sögðu okkur frá verkefninu.

Fyrsta skóflustungan að húsinu var tekin í byrjun ágúst af sjálfboðaliðum Icelandic Roots en stefnt er að því að vígja húsið á Íslendingadeginum að ári.

Byggingin gengur undir nafninu The Icelandic Rootshús. Þar verður geysistórt safn íslenskra bóka og hægt verður að fræðast um vesturíslenskan menningararf og ættfræði, en Icelandic Roots hefur byggt upp geysistóran gagnagrunn um vesturfarana í Kanada og Bandaríkjunum og ættir þeirra og uppruna á Íslandi.

Á myndinni má sjá Sunnu Furstenau, Cathy Josephson og Doug Hanson, ásamt Guðrúnu Nordal og Gísla Sigurðssyni.