Skip to main content

Fréttir

Nýjasta hefti Málfregna: Íslensk tunga á tímum snjalltækja

""

Í nóvember kom út nýjasta hefti Málfregna, tímarits Íslenskrar málnefndar.

Þessi útgáfa er tileinkuð málræktarþingi Íslenskrar málnefndar sem haldið var í Eddu 24. september síðastliðinn. Yfirskrift þingsins var Íslensk tunga á tímum snjalltækja.

Erindin sem haldin voru á þinginu og birtast í heftinu eru eftirfarandi:

  • Atli Jasonarson: Margt smátt gerir eitt stórt. Um stór mállíkön og smærri tól
  • Iris Edda Nowenstein: Hvað gerist þegar heilbrigðistækni virkar ekki á íslensku?
  • Óttar Kolbeinsson Proppé: Getum við haldið í þórðargleðina? Um áhrif gervigreindar á málsöguna
  • Anna Björk Nikulásdóttir: Tækin tala íslensku. Íslenskar raddir í snjalltækjum
  • Stefán Ólafsson: Margt ósagt. Þörfin fyrir marghátta íslensk málgögn

Hér má finna nýjasta hefti Málfregna.

Vefur tímaritsins.