Skip to main content

Fréttir

Nýr vefur: Nöfn Íslendinga

Opnaður hefur verið vefurinn Nöfn Íslendinga sem birtir samnefnt rit Guðrúnar Kvaran um íslensk mannanöfn. Fyrsta útgáfa þess kom út 1991 og var meðhöfundur Sigurður Jónsson frá Arnarvatni. Endurskoðuð og aukin útgáfa eftir Guðrúnu eina kom út 2011 og allar götur síðan hefur hún haldið gagnagrunninum við, m.a. uppfært tíðnitölur og bætt við nýjum nöfnum.

Nöfn Íslendinga er jöfnum höndum fræðirit og uppflettirit um þau nöfn sem Íslendingar hafa borið frá því manntal var fyrst tekið árið 1703 ásamt nöfnum sem koma fyrir í eldri heimildum. Getið er um uppruna nafna og merkingu, aldur þeirra og tíðni svo og sitthvað annað til fróðleiks og skemmtunar.

Um vefinn

Á vefnum er hægt að leita eftir nöfnum og ritháttum þeirra og lesa um uppruna, merkingu, aldur og fleira. Vísanir í önnur nöfn birtast sem tenglar þar sem hægt er að fara beint inn í færslu um viðkomandi nafn. Einnig birtist stafrófslisti til hliðar við hverja færslu og þannig er hægt að fletta í gegnum verkið.

Til viðbótar við upplýsingar um mannanöfn er boðið upp á tölfræðisýn hvers nafns þar sem notast er við upplýsingar úr Íslendingabók. Þar birtist línurit sem sýnir fæðingarár fólks sem ber nafnið sem eiginnafn og seinna eiginnafn. Upplýsingarnar sem birtast ná aftur til 1650 en hægt er að fara lengra aftur. Þær upplýsingar eru þó ekki að öllu leyti marktækar þar sem heimildir um nafnbera verða stopulli eftir það.

Hlekkur á vefinn Nöfn Íslendinga