Skip to main content

Fréttir

Raddir íslenskunnar kveðja sér hljóðs næstu vikuna

Raddir íslenskunnar svara mikilvægum spurningum.


Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember fögnum við íslenskunni í öllum þeim hljómbrigðum sem finna má í nærumhverfinu og spyrjum: „Af hverju er íslenskan mikilvæg fyrir þig?“ og „Af hverju ert þú mikilvæg/-ur fyrir íslenskuna?“

Í dag hefst herferð á vegum Borgarbókasafnsins, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Vigdísarstofnunar, þar sem birt verður daglega nýtt örmyndband fram að degi íslenskrar tungu. Myndböndin varpa ljósi á og fagna ólíkum röddum íslenskunnar. Skoða myndband.

Stofnanirnar hvetja einnig nemendur, kennara og einstaklinga til að vinna saman að gerð örmyndbanda og leita svara við þessum spurningum, sem vekja okkur til umhugsunar um mikilvægi íslenskunnar fyrir okkur og um okkar eigið framlag til tungumálsins.

Myndböndin mega ekki vera lengri en ein mínúta og merkja skal þau með myllumerkinu #daguríslenskrartungu en einnig má deila þeim á vegg dags íslenskrar tungu á Facebook.