Skip to main content

Fréttir

Ráðstefnukall: Heimur bókmenntanna 2026

Bókmennta- og listfræðastofnun við HÍ, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við HÍ og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum boða til bókmenntaþings í Eddu föstudaginn 8. maí 2026.

Markmiðið með þinginu er að skapa samræðuvettvang fyrir fræðafólk, kennara og nemendur sem fást við bókmenntir. Fyrirhugað er að þingið verði haldið árlega héðan í frá.

Auglýst er eftir tillögum að fyrirlestrum eða pallborðsumræðum um hvaðeina sem við kemur bókmenntum og bókmenntarannsóknum. Enn fremur er auglýst eftir tillögum að upplestrum úr frumsömdum eða þýddum skáldverkum. Meistara- og doktorsnemar eru hvattir til að senda inn tillögur. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.

Umsækjendur sendi titil og útdrátt eða lýsingu (150–200 orð) til Ástu Kristínar Benediktsdóttur (akb@hi.is) og taki jafnframt fram um hvers konar efni sé að ræða:

  • Hefðbundinn fyrirlestur: Reiknað er með 20 mínútna erindi og 10 mínútum í umræður.
  • Örfyrirlestur: Reiknað er með 5–7 mínútna erindi og mögulega nokkrum spurningum í lokin.
  • Pallborð: Óskað er eftir þema/umræðuefni, lýsingu og 3–4 þátttakendum.
  • Upplestur: Reiknað er með 5–15 mínútna löngum lestri upp úr verki sem er frumsamið eða þýtt af umsækjanda.
  • Annað.

Berist margar umsóknir áskilja skipuleggjendur sér rétt til að stytta þann tíma sem hver þátttakandi fær og/eða velja inn efni.

Upplýsingar um þingið veitir Ásta Kristín: akb@hi.is