Skip to main content

Fréttir

Samkomulag um nýtingu orðabóka í námsefni

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Menntamálastofnun gerðu með sér samkomulag á dögunum um nýtingu orðabóka í námsefni með það að markmiði að bæta aðgengi íslenskra barna og ungmenna að ritstýrðum orðabókum í gegnum rafrænt námsefni Menntamálastofnunar.

Orðabækurnar eru núna opnar gjaldfrjálst á vefgátt Árnastofnunar málið.is. Með samkomulaginu fær Menntamálastofnun heimild til að vísa í þær eða fella inn í námsefni eftir því sem unnt er með tilkomu nýrrar íslenskugáttar sem unnið er að um þessar mundir.

Vonir standa til að með því að auðvelda nemendum og kennurum aðgang að orðabókum stofnunarinnar jafnist tækifæri nemenda með ólíkan orðaforða og tungumálabakgrunn. Jafnframt gefast tækifæri til eflingar almenns orðaforða barna og ungmenna sem er grunnur þekkingarsköpunar.

Forstöðumenn beggja stofnana við undirritun samnings, Guðrún Nordal og Þórdís J. Sigurðardóttir.
Halldóra Jónsdóttir