Skip to main content

Fréttir

Styrkir til BA-náms í íslensku sem öðru máli − umsóknarfrestur er til 1. desember

Skjaldarmerki Íslands

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast umsýslu með styrkjum menningar- og viðskiptaráðuneytis til erlendra stúdenta til að stunda íslenskunám við Háskóla Íslands.

Árlega eru veittir um það bil tólf styrkir til BA-náms í íslensku sem öðru máli. Nemendur verða að hafa lokið a.m.k. einu námsári á háskólastigi.

Umsóknarfrestur er til 1. desember. Sjá nánari upplýsingar um styrkinn og skráningarblað á ensku.