Skip to main content

Fréttir

Upptaka af fyrirlestri Hildar Ploder Vigfúsdóttur: Í góðri trú. Íslenskar handritaviðgerðir á 20. öld

Hér er hægt að horfa á fyrirlestur sem Hildur Ploder Vigfúsdóttir, pappírsforvörður á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, flutti 29. september 2026 í Eddu.

Efni fyrirlestrarins

Fyrirlesturinn fjallar um sögu og þróun handritaviðgerða á Íslandi á 20. öld. Sjónum er beint að einstaklingum sem sinntu viðgerðum á handritum hér á landi en einnig er farið yfir hvaða aðferðum og tækni var beitt, hvaða efni voru notuð og hvernig vinnubrögð breyttust á þessari viðburðaríku öld.

Efni fyrirlestrarins er skýrt með dæmum úr handritum sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur lánað á sýninguna Heimur í orðum.