Skip to main content

Fréttir

Upptaka af fyrirlestri Sigríðar Guðmarsdóttur: Altarið, stoðirnar og söfnuðurinn. Hómilíubókin í ljósi hagnýtrar samtímaguðfræði

Hér er hægt að hlusta á fyrirlestur sem Sigríður Guðmarsdóttir, prófessor í hagnýtri guðfræði við Háskóla Íslands, flutti í Eddu 3. nóvember 2026.

Íslenska hómilíubókin
Sigurður St. Jónsson

Efni fyrirlestrarins

Hvað gerist þegar innflutt guðfræði mætir íslenskum veruleika? Getur þýdd prédikun frá upphafi þrettándu aldar enn mótað kirkjulega helgisiði og prédikun á Íslandi?

Í erindinu er íslenska hómilíubókin skoðuð sem sögulegur vitnisburður um prédikun og helgisiði og hún borin saman við prédikanir norsku hómilíubókarinnar og íslensk helgisiðarit.

Bækurnar geyma fyrst og fremst þýddar prédikanir, en stafkirkjuprédikunin, sem talin er af norrænum uppruna, veitir sérstakan samanburðarflöt. Í erindinu er kannað hvernig erlendum guðfræðihugmyndum er miðlað á móðurmáli og hvernig tungutak, myndlíkingar og allegórísk túlkun staðfæra sameiginlegan evrópskan prédikunararf.

Í stafkirkjuprédikuninni verður kirkjubyggingin sjálf að guðfræðilegu táknkerfi: altarið merkir Krist, stoðirnar postula og spámenn og klukkurnar kennimenn. Þessi sýn kallar á samtal við ný handbókardrög þjóðkirkjunnar þar sem glímt er við samkirkjulega þætti helgihaldsins, skiljanlegt og inngildandi tungutak, biblíulegt myndmál, þátttöku safnaðarins og jafnvægi, festu og sveigjanleika í helgihaldi.

Erindið spyr því ekki aðeins hvað hómilíurnar merkja í sögulegu samhengi, heldur hvort og þá hvernig þær geti haft áhrif á íslenska helgisiði og prédikunarhætti nú um stundir.

Sigríður Guðmarsdóttir.

Nánar um fyrirlesara

Sigríður Guðmarsdóttir er prófessor í hagnýtri guðfræði við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar spanna meðal annars helgisiða- og sálmafræði, guðfræði norðurslóða, femíníska og hinsegin guðfræði, afnýlenduvæðingu og vistguðfræði. Í kennslu og rannsóknum fæst hún við tengsl guðfræði, kirkjulegrar iðkunar, menningar og samfélags.