Skip to main content

Fréttir

Upptaka af fyrirlestri Sverris Jakobssonar: Væringjar í austurvegi

Kápan á bók Sverris Jakobssonar: The Varangians. In God's Holy Fire
Palgrave Macmillan

Hér er hægt að hlusta á fyrirlestur sem Sverrir Jakobsson flutti í Eddu 21. október í tengslum við sýninguna Heimur í orðum. 

Nánar má fræðast um væringja í bók Sverris, The Varangians. In God's Holy Fire, sem kom út árið 2020.

Efni fyrirlestrarins

Norrænir menn sem börðust fyrir rómverska keisarann í Miklagarði (Konstantínópel) eru kallaðir væringjar í ýmsum þekktum Íslendingasögum, s.s. Laxdæla sögu og Njáls sögu.

Í fyrirlestrinum fjallar Sverrir um það hvenær væringjar urðu til og hvernig þeir voru skilgreindir á ýmsum menningarsvæðum. Einnig er fjallað um ýmsar staðalmyndir af væringjum sem finna má í íslenskum miðaldabókmenntum.