Skip to main content

Fréttir

Upptaka af fyrirlestri Þórunnar Sigurðardóttur: Hvað er í öskjunum? Fornbréf í safni Árna Magnússonar

Hér er hægt að hlusta á Árna Magnússonar fyrirlestur Þórunnar Sigurðardóttur sem hún flutti í Eddu 13. nóvember 2026.

Efni fyrirlestrarins

Á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er varðveitt mikið safn fornbréfa sem ná frá 14. öld og allt fram á fyrri hluta 18. aldar. Einnig er í safninu fjöldi afrita fornbréfa sem sum eru talin glötuð en innihald þeirra er nú varðveitt í uppskriftum Árna Magnússonar og skrifara hans, svokölluðum apógröfum. Um er að ræða skjöl varðandi kaupmála, máldaga kirkna, ýmiss konar samninga, dóma, jarðakaup, landamerkjamál, rekamál og margt fleira. Stofnunin fékk bréfin afhent frá Kaupmannahöfn árið 1996 en áður hafði hluti fornbréfa úr safni Árna komið til Þjóðskjalasafns Íslands og annar hluti, þ.e. norsk bréf, fór til ríkisskjalasafnsins í Ósló. Eftir á Árnasafni í Kaupmannahöfn eru dönsk bréf og afrit norskra fornbréfa.

Á síðastliðnum þremur árum hefur verið unnið að því að ljósmynda og skrá þessar mikilvægu sögulegu heimildir með veglegum styrk frá A.P. Møller-sjóðnum. Í fyrirlestrinum er sagt frá verkefninu, hvernig það kom til og hvernig það var gert mögulegt. Enn fremur er greint frá uppbyggingu gagnagrunnsins, hvernig hann getur nýst fræðimönnum, rætt um tegundir fornbréfa og komið með nokkur áhugaverð dæmi um innihald bréfa. Að lokum er fjallað um efnislega hlið bréfanna, svo sem útlit og skreytingar, eða hvað annað megi finna í gagnasafninu en texta fornbréfanna.