Skip to main content

Fréttir

Viskustykki - nýtt frá Mettusjóði

Viskustykki. Afmælisrit Mette.

 

Út er komið ritið Viskustykki undin Soffíu Guðnýju Guðmundsdóttur fimmtugri 4. apríl 2014. Í ritinu eru um 30 stuttar en bráðskemmtilegar greinar Soffíu til heiðurs.

Útgefandi er Menningar- og minningarsjóður Mette Magnussen sem starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafa umsjón með og gefa út til gamans fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli.

Umsjón með útgáfunni höfðu Rósa Þorsteinsdóttir og Gunnvör S. Karlsdóttir.

Ritið fæst á stofnuninni í Árnagarði og kostar 2.500 krónur. Nánari upplýsingar gefur Rósa Þorsteinsdóttir, netfang: rosat@hi.is.

Soffía Guðný Guðmundsdóttir.