Skip to main content

Fréttir

Ágústa hjá Íþróttasambandi Íslands
Aukinn áhugi og skilningur á íðorðastarfi

Í haust og vetrarbyrjun hefur verið mikill gangur í íðorðastarfi á Íslandi. Ágústa Þorbergsdóttir, málfræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og bankastjóri Íðorðabankans, segir að langþráðum áfanga hafi verið náð þegar nýr Íðorðabanki var opnaður á hátíðarfundi í Norræna húsinu 30. október. Þá var því um leið fagnað að heil öld er liðin frá því að fyrsta íðorðanefnd Verkfræðingafélags Íslands tók til starfa. Frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi í Verkfræðingafélagi Íslands, opnaði íðorðabankann að viðstöddu fjölmenni.

Ráðherra með hinum heiðruðu
Jón G. Friðjónsson og Reykjavíkurdætur heiðruð á degi íslenskrar tungu

Jón G. Friðjónsson, prófessor emerítus við Háskóla Íslands, tók við Verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar úr hendi Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, á degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2019. Við sama tækifæri veitti ráðherra Reykjavíkurdætrum sérstaka viðurkenningu fyrir að vera rödd tímans með listsköpun sinni.

Í rökstuðningi ráðgjafanefndar ráðherra segir um störf Jóns G. Friðjónssonar í þágu íslenskrar tungu:

Orðabanki opnaður
Nýr Íðorðabanki opnaður

 

Miðvikudaginn 30. október var þess minnst að 100 ár eru liðin frá stofnun fyrstu orðanefndar Verkfræðingafélags Íslands. Fundurinn var haldinn af Verkfræðingafélagi Íslands í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Ræðumenn

Skuggahliðin jólanna lítur dagsins ljós

Bjartur bókaútgáfa hefur sent frá sér bókina Skuggahliðin jólanna í ritstjórn Evu Maríu Jónsdóttur og Rósu Þorsteinsdóttur og með teikningum Óskars Jónassonar. Bókinni er þannig lýst á bókarkápu:

Orð minnar kynslóðar á Vísindavöku Rannís

Á Vísindavöku Rannís þann 28. september sl. gafst gestum sem heimsóttu bás Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum kostur á að skrifa orð sinnar kynslóðar upp á töflu. Verkefnið vakti mikla athygli og komu rúmlega tvö hundruð manns við og skrifuðu orð sem þeir tengdu helst við sína jafnaldra. Þarna mátti meðal annars sjá gömul tískuorð eins og skvísa, steiktur, glætan, ýkt, hellað og mergjað, en einnig ný tískuorð eins og yeet, jess, ait (stytting á alright) og að flexa.