Skip to main content

Fréttir

Sigurðar Nordals fyrirlestur 2017

Sigurðar Nordals fyrirlestur var haldinn við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu 14. september.

 

Fjölmargir gestir komu saman til að hlýða á fyrirlesturinn sem venju samkvæmt var haldinn á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals 14. september. Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, flutti fyrirlestur sem bar yfirskriftina Gleymska og geymd á stafrænum tímum.

 

Þrjátíu nemar luku sumarskóla í handritafræðum

Sumarskóla í handritafræðum var slitið í Kaupmannahöfn föstudaginn 18. ágúst. Skólinn er samstarfsverkefni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Nordisk Forskningsinstitut í Kaupmannahöfn í samvinnu við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.

Nemendur í skólanum þetta árið voru þrjátíu, þar af hlutu átján grunnmenntun, átta voru framhaldsnemar og fjórir mættu í vinnustofur og unnu með forn handrit undir leiðsögn sérfræðinga.

Ákveðið að ráða Emily Lethbridge í stöðu rannsóknarlektors á nafnfræðisviði

Ákveðið hefur verið að ráða Emily Lethbridge í stöðu rannsóknarlektors á nafnfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Um starfið bárust fimm umsóknir.

Emily er með doktorspróf frá Cambridge-háskóla í íslenskum miðaldabókmenntum, textafræði og handritafræði. Í rannsóknum sínum leggur hún áherslu á nálganir sem snúa að landslagi, örnefnum og landsháttum, og samband miðaldatexta og landslags.

Bók um Fjölnisstafsetninguna komin út

Gunnlaugur Ingólfsson, emeritus við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, hefur búið til prentunar ritið
Fjölnisstafsetningin.  Hliðarspor í sögu íslenskrar stafsetningar.

 

Í bókinni er fjallað um helstu atriði þessara stafsetningarnýjunga og viðbrögð við þeim, svo og áhrif og afdrif þeirra. Bókin byggir að miklu leyti á ritsmíðum sem hafa ekki fyrr komið út á prenti heldur hafa legið í handriti og eru varðveittar í handritadeild Landsbókasafns - Háskólabókasafns.