Skip to main content

Fréttir

Staða íslenskukennara við Sorbonneháskóla laus til umsóknar

Staða íslenskukennara við Sorbonneháskóla í París er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. september 2010. Ráðning er tímabundin til þriggja ára með möguleika á endurráðningu til jafnlangs tíma. Kennsluskylda er 192 tímar á ári. Krafist er M.A. prófs í íslensku og kennslureynslu. Umsækjendur þurfa að geta kennt íslenskt mál og bókmenntir og fjallað um íslenskt samfélag. Æskilegt er að þeir hafi búið á Íslandi undanfarin ár. Kunnátta í frönsku er nauðsynleg.

„Undir Hornafjarðarmána“ 21.-23. maí

Sagnfræðingafélag Íslands og Félag þjóðfræðinga á Íslandi áætla að halda næstu landsbyggðaráðstefnu sína á Suðausturlandi; í Suðursveit og á Höfn Hornafirði. Ráðstefnan verður haldin í samvinnu við Fræðasetur Háskóla Íslands á Höfn og ReykjavíkurAkademíuna, helgina 21.-23. maí.

„Um ævisögu Snorra Sturlusonar“, 28. janúar

Fyrsta rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á þessu vormisseri verður haldið næstkomandi fimmtudag, 28. janúar, kl. 20 í húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3. Þar flytur Óskar Guðmundsson, rithöfundur, fyrirlestur sem hann nefnir Um ævisögu Snorra Sturlusonar. Höfundur lýsir erindi sínu á þessa leið:

24. Rask-ráðstefnan 30. janúar

Íslenska málfræðifélagið og Málvísindastofnun Háskóla Íslands halda hina árlegu Rask-ráðstefnu um íslenskt mál og almenna málfræði laugardaginn 30. janúar næstkomandi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.

Dagskrá

9.00. Ráðstefnan sett
9.15–9.45. Kristín Bjarnadóttir: Algilt -i eða hverfult? Um þágufall eintölu í sterkum hvorugkynsnafnorðum
9.45–10.15. María Garðarsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir: Stigveldi máltileinkunar

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum
Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn
12. - 20. ágúst 2010

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum á vegum Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefst 12. ágúst n.k. Í sumar fer námið fram í Kaupmannahöfn en annað hvert ár í Reykjavík.

Nánari upplýsingar má fá á ensku á heimasíðu Den Arnamagnæanske Samling: http://nfi.ku.dk/kalender/7th-int-manuscript/

„Íslenskukennsla og vefurinn“ 27. janúar

Rannsóknarstofa um íslensk fræði og íslenskukennslu heldur málþing um íslenskukennslu og vefinn þann 27. janúar næstkomandi í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð/Háteigsveg. Þar munu fulltrúar ýmissa stofnana kynna það starf sem þar er unnið og tengist íslenskukennslu á vef. Um er að ræða mikla fjölbreytni og samband við alla aldurshópa, allt frá nemendum á leikskólaaldri til háskólanema og starfandi fólks um allt land. Íslendingar jafnt sem útlendingar og innflytjendur njóta þess starfs sem unnið er á þessum vettvangi.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum óskar eftir að ráða öryggisvörð í hlutastarf

Öryggisvörður stendur reglubundnar vaktir samkvæmt vaktaskrá og einnig aukavaktir vegna tilfallandi aðstæðna.
Öryggisvörður vaktar húsnæði og viðvörunarkerfi.
Öryggisvörður hefur eftirlit með húsnæði og búnaði og sinnir einföldu viðhaldi og viðvikum.

Hæfniskröfur: Góð almenn menntun og reglusemi. Gott almennt heilsufar. Hreint sakavottorð. Almenn starfsreynsla og jákvæð frammistaða á almennum vinnumarkaði. Árvekni og skyldurækni í starfi. Vinsamlegt viðmót og vilji til samstarfs um hag stofnunarinnar.