Skip to main content

Fréttir

Ávinningur þýðendaþings seint metinn í peningum


Alþjóðlegt þýðendaþing á Íslandi var haldið 23. - 26. apríl s.l. Í skýrslu um þingið kemur fram að þýðendur hafi kvatt landið með sól í hjarta, stútfullir af hugmyndum um nýjar þýðingar. Betri sendiherra Íslands á erlendri grund sé vart hægt að hugsa sér og markaðslegur ávinningur þess að fá þá hingað til lands verði seint metinn í peningum. Að þinginu stóðu Sagenhaftes Island, Bókmenntasjóður, Félag íslenskra bókaútgefenda, Rithöfundasambandið, Háskólasetur H.Í. á Höfn, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Greppaminni - Vésteinn Ólason sjötugur


Greppaminni er komið út. Í ritinu eru yfir þrjátíu greinar eftir jafnmarga höfunda skrifaðar til heiðurs Vésteini Ólasyni sjötugum. Vésteinn Ólason á að baki langan og farsælan feril sem fræðimaður, háskólakennari, útgefandi og forstöðumaður en Vésteinn lét af störfum sem forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í lok febrúar á þessu ári. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.

Nýtt ráðstefnurit um orðabækur og orðabókafræði

Vorið 2007 var haldin á Akureyri norræn ráðstefna um orðbókafræði – 9. Konference om leksikografi i Norden – á vegum norræna orðabókafræðifélagsins, NFL, og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Nú er komið út ráðstefnurit með greinum sem byggjast á fyrirlestrum af þinginu, alls 37 greinar eftir rúmlega 40 norræna orðabókafræðinga og viðfangsefnin eru fjölbreytileg. Margar greinar fjalla um norrænar orðabækur af ýmsu tagi, bæði nýlegar orðabækur og verk sem eru í smíðum, t.d. tvímála orðabækur, réttritunarorðabækur, mállýskuorðabækur og ferðamannaorðabækur.

Norræn nöfn – Nöfn á Norðurlöndum. Hefðir og endurnýjun

Út er komið ráðstefnurit með 44 greinum sem byggjast á fyrirlestrum sem haldnir voru á 14. norrænu nafnaráðstefnunni sem haldin var í Borgarnesi í ágúst 2007. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Nafnfræðifélagið skipulögðu ráðstefnuna og stofnunin gefur ritið út í samvinnu við NORNA-forlagið í Uppsölum.

Á að selja handritin? spyr Vésteinn Ólason á Söguslóðum 2009


Málþing Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu (SSF) í samvinnu við menntamálaráðuneyti og Útflutningsráð Íslands verður haldið í Þjómenningarhúsinu þann 16. apríl frá kl. 13-17. Á málþinginu sem nefnist Söguslóðir 2009 - Unnið úr arfinum verður fjallað um menningar- og söguferðaþjónustu á Mön, Gotlandi og á Íslandi og tækifæri til nýsköpunar á þeim vettvangi hérlendis. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra ávarpar gesti. Meðal fyrirlesara er Vésteinn Ólason, fyrrum forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Erindi Vésteins nefnist: Á að selja handritin?

Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða fimmtudag klukkan 20


Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða í húsi Sögufélags við Fischersund nk. fimmtudag klukkan 20.

Fyrirlesari er dr. Ragnheiður Kristjánsdóttir, aðjúnkt í sagnfræði við Háskóla Íslands. Í erindi sínu kynnir hún afmarkaða þætti doktorsritgerðar sinnar Nýtt fólk. Þjóðerni og íslensk verkalýðsstjórnmál 1901–1944. Hún lýsir því nánar á þennan veg:

Bringubakki og Kögunarhóll eru meðal nýrra nafna á býlum

Ný nöfn á um fjörutíu býlum bárust örnefnanefnd á síðasta ári. Sum þeirra eru ný af nálinni, eins og Bringubakki, Fagrahorn, Hófgerði, Hrafnsholt og Kögunarhóll en önnur eru þekkt víða um sveitir, t.d. Hlíðarendi og Laufás. Á heimasíðunni er listi yfir nöfnin sem bárust nefndinni en hann er tekinn úr ársskýrslu nefndarinnar fyrir árið 2008:

Staða háskólakennara í íslensku í Winnipeg laus til umsóknar


Vakin er athygli á að auglýst hefur verið laus til umsóknar tímabundin staða kennara í íslensku við Manitobaháskóla í Kanada. Ráðið verður í stöðuna til eins árs frá 1. júlí eða 1. ágúst nk. Kennaranum er ætlað að kenna íslenskt nútímamál. Kennsluskyldan er 18 tímar á viku. Umsækjendur skulu a.m.k. hafa lokið M.A.-prófi í íslensku eða sambærilegu prófi og hafa reynslu af kennslu á háskólastigi.

Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk. 

Umsóknir með ferilskrá og fylgigögnum sendist til:

Dr. Birna Bjarnadóttir, Chair,
Department of Icelandic,

Mímisþing 28. mars 2009


Mímisþing, málþing íslenskunema, verður haldið í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna laugardaginn 28. mars 2009 í fundarsal hennar á 4. hæð í JL-húsinu við Hringbraut.

Skipulögð dagskrá stendur frá 12:00 til 17:30 með tveimur hléum þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og kaffi. Eftir að dagskránni lýkur verða drykkir í boði og tilheyrandi kátína.

Fundarstjóri er Gyða Erlingsdóttir.

Fyrirlestrarnir eru þessir:

12:00 – 12:30