Skip to main content

Fréttir

Málþing í minningu Konráðs Gíslasonar (1808-1891)


Í júlí voru 200 ár liðin frá fæðingu Konráðs Gíslasonar (1808-1891) málfræðings og Fjölnismanns. Íslenska málfræðifélagið og Málvísindastofnun Háskóla Íslands efna af því tilefni til málþings laugardaginn 11. október næstkomandi um ævi og störf Konráðs og fræðileg viðfangsefni honum tengd.

Dagskrá

11.00 Ráðstefnan sett

11.15–11.45 Guðrún Kvaran:

Orðabókarmaðurinn Konráð Gíslason


11.45–12.15 Margrét Jónsdóttir:

Erlend orð um mat og góðgæti og annað því tengt í orðabók Konráðs

Ég ann þessu eina blómi - aldarafmæli Steins Steinars


Í tilefni af aldarafmæli Steins Steinarr stendur Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Forlagið fyrir dagskrá um skáldið í Norræna húsinu laugardaginn 11. október kl. 14.00-16.30. Bókmenntafræðingarnir Dagný Kristjánsdóttir og Ingi Bogi Bogason, Hrafnhildur Schram listfræðingur og Jón Ólafsson tónlistarmaður fjalla um ljóð og lífsafstöðu Steins, samvinnu hans við íslenska myndlistarmenn og tónlist sem gerð hefur verið við kvæði hans. Þá mun Jón Egill Bergþórsson kvikmyndagerðarmaður sýna brot úr viðtölum þar sem samferðamenn Steins minnast kynna sinna við hann.

Bessastaðaskóli – vagga íslenskrar menningar


Áhrif og arfur dr. Hallgríms Scheving

Laugardaginn 4. október næstkomandi verður í annað sinn efnt til hátíðarinnar Bessastaðaskóli – vagga íslenskrar menningar. Dagskráin hefst klukkan 14 í íþróttamiðstöð Álftaness.

Språk i Norden 2008 - útdrættir á íslensku


Tímaritið Språk i Norden 2008 er komið út. Þema þessa árgangs er nafnrækt og löggjöf um nöfn: mannanöfn, örnefni og vörumerki. Greinarnar veita sameiginlega yfirlit um nafnrækt og nafnalöggjöf um öll Norðurlönd auk greinargerðar um starf sérfræðinganefndar SÞ um örnefni. Einnig er birt samþykkt sem sérfræðingar um norræna nafnrækt gerðu haustið 2007. Þá er í heftinu grein um framkvæmd norrænu málstefnuyfirlýsingarinnar 2006, stutt kynningargrein um finnsku og yfirlit um norrænt tungumálasamstarf 2007.

Staða forstöðumanns laus til umsóknar

Staða forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur verið auglýst laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá 1. mars 2009, en umsóknarfrestur er til 1. okt. 2008.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun sem hefur náin tengsl við Háskóla Íslands. Hlutverk hennar er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum, einkum á sviði miðaldafræða, íslenskrar tungu og bókmennta, að miðla þekkingu á þeim fræðum og varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin eða hún á.

Nýir forsetar fræðasviða Háskóla Íslands

Fimm nýir forsetar hafa verið ráðnir til að stjórna fræðasviðum Háskóla Íslands. Forseti Hugvísindasviðs verður Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, forseti menntavísindasviðs verður Jón Torfi Jónasson, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs verður Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor jarðvísindum við háskólann í Bristol á Englandi, forseti félagsvísindasviðs verður Ólafur Þ.

Rósaleppar, afmælisrit Mette


Út er komið ritið Rósaleppar, til heiðurs Rósu Þorsteinsdóttur, þjóðfræðingi á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ritið inniheldur yfir 30 greinar fræðimanna og félaga henni til heiðurs og er komið víða við. Barnagælur, þjóðsögur, rím og Hofsós eru meðal þess sem lesa má um svo að fátt eitt sé nefnt.

Gísli Sigurðsson skipaður Professor II og Visiting Professor


Gísli Sigurðsson, stofustjóri þjóðfræðisviðs á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum var skipaður Professor II við Háskólann í Stavanger frá 1. ágúst, til þriggja ára. Þetta er 20% starf og felst í ráðgjöf við uppbyggingu náms og rannsóknaverkefna í íslenskum fornbókmenntum, umsjón með lokaritgerðum og fyrirlestrahaldi við skólann.