Skip to main content

Fréttir

Tillagan er sérstæð og frumleg með sínu sjálfstæða og skýra sporöskjuformi


Úrslit í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu sem mun hýsa Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og íslenskuskor Háskóla Íslands hafa verið tilkynnt. Nítján tillögur bárust, sex voru verðlaunaðar við athöfnina.

Formaður dómnefndar, Sigríður Anna Þórðardóttir, kynnti niðurstöðurnar og menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Vésteinn Ólason, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ ávörpuðu gesti í morgun þegar úrslit samkeppninnar voru kynnt.

Samkeppni um hönnun húss, úrslit tilkynnt 21. ágúst

Tilkynnt verður um úrslit samkeppni um hönnun húss handa Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslenskuskor Háskóla Íslands í hátíðarsal Háskólans fimmtudaginn 21. ágúst kl. 10.30. Auk vinningstillögunnar hljóta tvær tillögur verðlaun og þrjár tillögur verða keyptar. Alls bárust nítján tillögur.

Maður, menning og náttúra


Sjötta samstarfsráðstefna Manitobaháskóla og Háskóla Íslands; Maður, menning og náttúra (mannlegi þátturinn og umhverfið í kanadísku og íslensku umhverfi) verður haldin dagana 28.-29. ágúst. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, setur ráðstefnuna sem hefst klukkan tíu í hátíðarsal HÍ.

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Fréttabréf stofnunarinnar 2008 - 1 komið út (á ensku)


Stofnunin gefur út fréttabréf á ensku til að miðla upplýsingum um kennslu og rannsóknir í fornnorrænum og íslenskum fræðum, ráðstefnur og fundi, bækur og tímarit. Það kemur að jafnaði út tvisvar á ári og flytur fréttir bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Fréttabréfið er sent stofnunum og fræðimönnum, hvarvetna í heiminum, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur á póstfangaskrá sinni.

Íslenskukennsla í Winnipeg


Vakin er athygli á að auglýst hefur verið laus til umsóknar staða kennara í íslensku við Manitobaháskóla í Kanada. Ráðið verður í stöðuna til eins árs frá 1. ágúst eða 1. september nk. Kennaranum er ætlað að kenna íslenskt nútímamál. Kennsluskyldan er 18 tímar á viku. Umsækjendur skulu a.m.k. hafa lokið M.A.-prófi í íslensku eða sambærilegu prófi og hafa reynslu af kennslu á háskólastigi.

Umsóknarfrestur er til 6. júlí nk. Umsóknir með ferilskrá og fylgigögnum sendist til:
 

Landnám í Rangárþingi


Ráðstefna um landnám í Rangárþingi verður haldin á vegum Lærdómssetursins á Leirubakka helgina 6.-8. júní. Gísli Sigurðsson, formaður fræðastjórnar setur ráðstefnuna að loknum sameiginlegum kvöldverði, föstudaginn 6. júní. Opnunarfyrirlestur heldur Andrew Dugmore, prófessor við Háskólann í Edinborg sem hann nefnir: ,,Landscape change". Ráðstefnunni lýkur á sunnudeginum með skoðunarferð um Rangárþing.