Skip to main content

Fréttir

Dönsku krónprinshjónin skoða handritin

Á fyrsta degi opinberrar heimsóknar Friðriks krónprins Danmerkur og Mary krónprinsessu skoðuðu þau Handritin - sýningu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Þjóðmenningarhúsinu, ásamt gestgjöfum sínum forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni og frú Dorrit Moussaieff. Dr. Vésteinn Ólason forstöðumaður stofnunarinnar gekk með gestunum um sýninguna og kynnti þeim efni hennar. Guðrún Garðarsdóttir settur forstöðumaður Þjóðmenningarhússins tók á móti gestunum og sagði þeim frá sögu hússins sem nú spannar heila öld. Hin opinbera heimsókn varir til 8.

Nýtt rit um menningu og listir á 17. öld - Í ljóssins barna selskap


Nýlega kom út ritið Í LJÓSSINS BARNA SELSKAP, þar sem prentaðar eru greinar unnar upp úr fyrirlestrum frá ráðstefnu sem haldin var í Hallgrímskirkju 28. október 2006.

Höfundarnir ellefu koma frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi og fjalla um ýmsar hliðar menningar og lista á 17. öld. Mest fer fyrir bókmenntafræði en einnig er hér fjallað um heimspeki, guðfræði, tónlist og myndlist.

Þjóðsögur - íslenskar munnmælasögur á Akureyri


Sýningin Þjóðsögur – íslenskar munnmælasögur var opnuð í Amtsbókasafninu á Akureyri föstudaginn 14. mars og stendur til 30. apríl.

Um er að ræða verk tólf íslenskra teiknara, sem tóku að sér að myndskreyta þjóðsögur úr munnlegri geymd sem stofnunin gaf út fyrir jólin: Vel trúi ég þessu! Sýningin var unnin af Listasafni Reykjavíkur og eru sögurnar valdar úr hljóðritum í þjóðfræðasafni stofnunarinnar.

Þorleifur Hauksson hlýtur viðurkenningu fyrir ritun framúrskarandi fræðirits


Þorleifur Hauksson, íslensku- og bókmenntafræðingur var einn af tíu höfundum sem voru tilnefndir til viðurkenningar Hagþenkis 2007 fyrir ritun framúrskarandi fræðirits. Hann hlaut tilnefningu „fyrir yfirburða þekkingu á íslenskri stílfræði sem kristallast í vandaðri útgáfu sérstæðrar fornsögu“. Þorleifur hafði umsjón með og ritaði formála að Sverris sögu sem Hið íslenska fornritafélag gaf út árið 2007.

Á heimasíðu Hagþenkis má fá nánari upplýsingar um viðurkenninguna og Þorleif Hauksson.

Stóra upplestrarkeppnin - lokahátíðir víðs vegar um landið


Á næstu vikum fara fram lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar víðs vegar um landið. Alls verða hátíðirnar 32 -- sú fyrsta fer fram í Tónbergi, Tónlistarskólanum á Akranesi miðvikudaginn 5. mars kl. 20.00 en sú síðasta verður föstudaginn 18. apríl kl. 20.00 í Hömrum, Tónlistarskóla Ísafjarðar. Á hátíðunum koma fram úrvalslesarar úr 7. bekk grunnskóla í hverju héraði og flytja ljóð og laust mál eftir skáld keppninnar, sem að þessu sinni eru Jón Sveinsson (Nonni) og Steinn Steinarr. Einnig flytja lesararnir ljóð að eigin vali. Aðgangur að hátíðunum er ókeypis og öllum heimill.

Gripla XVIII er komin út

Gripla XVIII (2007) sem gefin er út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er komin út, fjölbreytt að vanda.