Skip to main content

Fréttir

Fréttabréf stofnunarinnar 2007 - 2 komið út (á ensku)


Stofnunin gefur út fréttabréf á ensku til að miðla upplýsingum um kennslu og rannsóknir í fornnorrænum og íslenskum fræðum, ráðstefnur og fundi, bækur og tímarit. Það kemur að jafnaði út tvisvar á ári og flytur fréttir bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Fréttabréfið er sent stofnunum og fræðimönnum, hvarvetna í heiminum, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur á póstfangaskrá sinni.

Örnefnasafn - nafnfræðisvið flutt á Neshaga



Örnefnasafn stofnunarinnar - nafnfræðisvið hefur verið flutt úr Lyngásnum í Garðabæ á Neshaga 16, 107 Reykjavík. Nýtt símanúmer er: 525 5157.

Hallgrímur J. Ámundason, Jónína Hafsteinsdóttir og Svavar Sigmundsson, starfsmenn nafnfræðisviðs eru þessa dagana að koma sér fyrir í nýjum húsakynnum. Þau eru í góðum félagsskap á Neshaganum en þar eru fyrir starfsmenn málræktarsviðs og orðfræðisviðs.

Íslensk handritasöfn taka þátt í evrópsku samvinnuverkefni


Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum taka þátt í evrópsku samvinnuverkefni sem hefur fengið yfirskriftina ENRICH, sem stendur fyrir European Networking Resources and Information concerning Cultural Heritage, en nefnist á íslensku: Evrópskar net- og upplýsingaveitur um menningararfleifð. Tilgangur verkefnisins er að veita aðgang frá einum stað að stafrænum myndum og lýsingum á handritum í evrópskum handrita-, skjala og minjasöfnum. Verkefnið mun standa yfir í tvö ár og því lýkur í nóvember 2009.

Nánari upplýsingar:

Alþjóðleg ráðstefna um bragfræði í sumar

Alþjóðleg ráðstefna um bragfræði á vegum Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands í samvinnu við Norrænt félag um bragfræðirannsóknir (Nordisk sällskap för metriska studier) og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldin í Reykholti í Borgarfirði dagana 18. - 21. júní.

Meginefni ráðstefnunnar verður: Germanskir þættir í norrænum og evrópskum kveðskap, málfræðileg og bókmenntaleg sjónarmið.

Meðal boðsfyrirlesara verða:

Styrkir til handritarannsókna veittir dönskum fræðimönnum

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur sérstaka fjárveitingu til að styrkja danska fræðimenn til rannsókna á Íslandi, einkum í tengslum við rannsóknir á handritum og öðrum frumheimildum.

Umsóknir fyrir árið 2008 voru afgreiddar skömmu fyrir jól:

Samkeppni um hönnun húsnæðis fyrir stofnunina


Með bréfi dags. 17. desember 2007 skipaði menntamálaráðherra dómnefnd „sem hefur það hlutverk að efna til opinnar samkeppni um hönnun húsnæðis Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum“.

Dómnefndin er þannig skipuð:

Ljóðmæli séra Einars í Eydölum (1539-1626) komin út

Komin eru út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum Ljóðmæli séra Einars Sigurðssonar (1539-1626) sem jafnan er kenndur við Eydali (Heydali) í Breiðdal en þar var hann prestur frá 1590 til dánadægurs. Jón Samsonarson og Kristján Eiríksson bjuggu Ljóðmælin til prentunar.

Bókin skiptist í þrjá hluta og er alls 320 bls.

Út er komin bókin Vel trúi ég þessu! sem geymir tólf munnmælasögur með myndum eftir tólf teiknara

Bókin ásamt geisladiski eru gefin út af Bókaútgáfunni Æskunni og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sögurnar eru úr þjóðfræðasafni stofnunarinnar, flestar teknar upp á sjöunda áratug síðustu aldar og sagðar af íslensku sagnafólki. Hver sagnamaður segir söguna á sinn sérstaka hátt og eins hafa teiknararnir sín sérkenni. Sumir kjósa að draga fram hið hlýja og mannlega í sögunum en aðrir velja að sýna gamansemina, hryllinginn eða groddalega afþreyinguna sem margar sögurnar bera með sér.