Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í sextánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Ný útgáfa af Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls

Nú hefur ný og endurbætt útgáfa af Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls verið tekin í gagnið. Hún er öllum opin og aðgengileg til leitar á vefsíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Til að nota hana er smellt á "Beyging orða" undir gagnasöfnum á forsíðu vefsins.

Nýja útgáfan tekur við af eldri gerð beygingarlýsingarinnar sem margir þekkja af heimasíðu Orðabókar Háskólans og hefur nýst ýmsum vel. Hún er talsvert aukin og endurbætt auk þess sem leitin er fljótvirkari en áður.

Málþing Íslenska málfræðifélagsins: Íslensk málfræði á bók


Traustar handbækur eru mikilvæg forsenda fyrir öflugri kennslu í íslenskri málfræði og gerð kennsluefnis fyrir grunn- og framhaldsskóla og jafnframt nauðsynleg hjálpartæki við frekari rannsóknir. Fyrir skömmu kom út hjá Almenna bókafélaginu ritið Íslensk tunga 1-3 en það er þriggja binda yfirlitsrit um íslenska málfræði. Ritstjórar og aðalhöfundar eru Kristján Árnason, Guðrún Kvaran og Höskuldur Þráinsson. Útkoma þessa rits markar nokkur tímamót og gefur tilefni til að meta ástand og horfur á sviði yfirlitsrita um íslenska málfræði og ræða hver næstu skref ættu að vera.

Málstofu frestað

Málstofu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem vera átti föstudaginn 23. nóvember hefur verið frestað vegna árekstra við aðra viðburði.

Gunnlaugur Ingólfsson mun flytja fyrirhugað erindi sitt ,,Tvær ritgjörðir eftir Sveinbjörn Egilsson" í málstofu föstudaginn 4. janúar 2008 kl. 15:00.

Minnt er á viðburði á vegum stofnunarinnar í desember:

Menntamálaráðherra opnar vefsíðu stofnunarinnar

Í tilefni af degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, heimsækir menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ráðherrann mun kynna sér starfsemi stofnunarinnar, ræða við stjórnendur og starfsfólk og opna formlega nýja vefsíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Skemmtisaga úr heimi handrita

 

Verkefni starfsmanna stofnunarinnar eru eins ólík og þau eru mörg. Óhætt er að segja að sum vekja meiri áhuga og kátínu hjá þjóðinni en önnur.

Samræður við söguöld á ítölsku

Bókin 'Samræður við söguöld : frásagnarlist Íslendingasagna og fortíðarmynd' eftir Véstein Ólason hefur verið þýdd á ítölsku og nefnist: 'Dialoghi con l'era vichinga. Narrazione e rappresentazione nelle Íslendingasögur'. Þýðandi er Silvia Cosimini og útgefandi: Edizioni Parnaso, 2006.

Frumútgáfan var gefin út af Heimskringlu, háskólaforlagi Máls og menningar árið 1998. Sama ár kom út þýðing Andrew Wawn á ensku hjá sama forlagi.

Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn 2008

Ríkisstyrkur Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2008 er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út 19. nóvember. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.

Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er þetta árið um 20.700 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.

Vefur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Vefur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur verið settur upp. Útlitið hannaði auglýsingastofan H2 hönnun. Umsjón og skipulagning vefs var í höndum vefstjórnar stofnunarinnar. Efni hefur verið komið fyrir í SoloWeb vefumsjónarkerfinu. Unnið er að því að setja vefinn upp á Norðurlandamáli og ensku. Nánari upplýsingar um vefinn má fá á heimasíðunni.

 

Sigfúsarþing 12. og 13. október


Helgina 12. og 13. október fer fram á Eiðum og Seyðisfirði Sigfúsarþing í minningu Sigfúsar Sigfússonar þjóðsagnaritara. Sigfúsarþingið er samstarfsverkefni Minjasafns Austurlands, Héraðsskjalasafns Austfirðinga, Gunnarsstofnunar, Árnastofnunar, Félags þjóðfræðinga á Íslandi og Miðstöðvar munnlegrar sögu. Lesa má meira um þingið á heimasíðu Miðstöðvar munnlegrar sögu.