Skip to main content

Fréttir

Gripla XVII er komin út

Gripla XVII (2006), sem gefin er út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er komin út og er þetta 67. ritið í ritröð stofnunarinnar Rit Árnastofnunar. Að vanda er efnið fjölbreytt en þar er að finna sex viðamiklar greinar og minningarorð um látna fræðimenn. Almennar upplýsingar um Griplu má lesa á útgáfusíðu stofnunarinnar.

Nýr starfsmaður

Jóhanna Bogadóttir MA hefur störf á málræktarsviði stofnunarinnar 15.  september, í hálfu starfi. Hún mun vinna við ýmis útgáfuverkefni sem fram undan eru á vegum stofnunarinnar. Jóhanna Bogadóttir er boðin velkomin til starfa.

Fréttabréf stofnunarinnar er komið út (á ensku)


Stofnunin gefur út fréttabréf á ensku til að miðla upplýsingum um kennslu og rannsóknir í fornnorrænum og íslenskum fræðum, ráðstefnur og fundi, bækur og tímarit. Það kemur að jafnaði út tvisvar á ári og flytur fréttir bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Fréttabréfið er sent stofnunum og fræðimönnum, hvarvetna í heiminum, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur á póstfangaskrá sinni.

Guðrún Kvaran sæmd fálkaorðunni


Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær, 17. júní,  sæmdi forseti Íslands tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Guðrún Kvaran, stofustjóri Orðfræðisviðs hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fékk riddarakross fyrir störf í þágu orðfræða og íslenskrar tungu.
 

Málþing um skrift, skriftarfræði og handrit


Málþing um skrift, skriftarfræði og handrit verður haldið fimmtudaginn 30. ágúst n.k. kl. 13-17. Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Fyrirlestrarnir verða haldnir á skandinavísku máli (og e.t.v. ensku).

Fyrirlesarar verða

Vel heppnuð ráðstefna um orðabókafræði

Nýlega er lokið norrænni ráðstefnu um orðabókagerð og orðabókafræði sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum stóð að ásamt norrænu félagi um orðabókafræði, NFL, og norsku málráði. Ráðstefnan var haldin á Hótel KEA á Akureyri dagana 22. til 26. maí.
 

Samstarfssamningur undirritaður á Skriðuklaustri 18. maí.

Undirrituð hefur verið skipulagsskrá Stofnunar Gunnars Gunnarssonar, sem sjálfseignarstofnun með stofnaðild menntamálaráðuneytis, Háskóla Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Rithöfundasambands Íslands og Þróunarfélags Austurlands. Vésteinn Ólason forstöðumaður undirritaði samninginn fyrir hönd Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Samkvæmt skipulagsskránni er hlutverk stofnunarinnar:
1. Að annast uppbyggingu og rekstur menningar- og fræðaseturs að Skriðuklaustri í Fljótsdal.

Samstarf Háskóla Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum


Háskóli Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafa undirritað samning um samstarf til næstu fimm ára. Markmið samstarfsins er að efla rannsóknir og kynningu á íslenskum fræðum hérlendis og í alþjóðlegu fræðasamfélagi, styrkja menntun stúdenta í greinum sem fást við íslensk fræði og síðast en ekki síst að tryggja gæði rannsókna í íslenskum fræðum og skyldum greinum.