Search
Konungsbók eddukvæða á landsskrá Íslands um Minni heimsins
Konungsbók eddukvæða GKS 2365 4to er ein af nýskráningunum á landsskrá Íslands um Minni heimsins.
NánarStúdentastyrkir
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast umsýslu með styrkjum menningar- og viðskiptaráðuneytis til stúdenta frá erlendum háskólum til íslenskunáms við Háskóla Íslands. Veittir eru um það bil tólf styrkir árlega fyrir BA-nám í íslensku sem öðru máli. Nemendur verða að hafa lokið a.m.k. einu ári á háskólastigi.
NánarUmsóknarfrestur um styrk til náms í íslensku
Umsóknarfrestur um styrki menntamálaráðuneytisins til náms í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands, skólaárið 2018–2019 er til 1. desember. Styrkjunum verður úthlutað í janúar 2019.
NánarBókmenntasögumálþing
Laugardaginn 8. september standa Góðvinir Grunnavíkur-Jóns fyrir málþingi um bókmenntasögur á 18. öld í tilefni af útgáfu Bókmenntasögu Jóns Ólafssonar úr Grunnavík hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Málþingið verður haldið í Þjóðarbókhlöðunni og hefst kl. 13:30. Dagskrá:
NánarSigurðar Nordals fyrirlestur
Á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals 14. september gengst stofnunin fyrir svokölluðum Sigurðar Nordals fyrirlestri. Að þessu sinni flytur Anna Agnarsdóttir prófessor fyrirlestur sem nefnist „Islande est peu connu“: Stórveldin sækja Ísland heim. Samskipti Frakka og Breta við Ísland á 18. öld.
Nánar