Skip to main content

Viðburðir

Bókmenntasögumálþing

9. september
2018
kl. 13.30–16

Reykjavík
Ísland

Laugardaginn 8. september standa Góðvinir Grunnavíkur-Jóns fyrir málþingi um bókmenntasögur á 18. öld í tilefni af útgáfu Bókmenntasögu Jóns Ólafssonar úr Grunnavík hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Málþingið verður haldið í Þjóðarbókhlöðunni og hefst kl. 13:30.

Dagskrá:

Þórunn Sigurðardóttir og Guðrún Ingólfsdóttir: Bókmenntasaga Jóns Ólafssonar úr Grunnavík.
Hjalti Snær Ægisson: Um framgang Íslendinga í Svíþjóð og aðrar fræðiheimildir Jóns Grunnvíkings.
Sigurður Pétursson: Þrír lærðir Jónar í Kaupmannahöfn á átjándu öld.
Gottskálk Jensson: Væntanleg útgáfa Sciagraphiu Hálfdanar Einarssonar.
Ármann Jakobsson: Er sögunni lokið? Bókmenntasaga fyrir 21. öldina.
 

Málþingsstjóri: Svanhildur Óskarsdóttir

Boðið er upp á léttar veitingar að málþingi loknu.

2018-09-09T13:30:00 - 2018-09-09T16:00:00

Til að skrá þig á viðburðinn, vinsamlegast fylltu út eyðublaðið hér að neðan.