Sigurður Svavarsson minningarorð
Sigurður Svavarsson, íslenskufræðingur, útgefandi og formaður Vinafélags Árnastofnunar.
NánarSigurður Svavarsson, íslenskufræðingur, útgefandi og formaður Vinafélags Árnastofnunar.
NánarNú fer hver að verða síðastur að taka þátt í notendakönnun um málið.is. Könnunin hefur verið í gangi á vefnum síðan í október og hefur svörun verið góð. Vefgáttin málið.is fær nú að jafnaði um 1000 heimsóknir á dag og hefur notendum fjölgað jafnt og þétt síðan forseti Íslands opnaði hana við hátíðlega viðhöfn 16. nóvember 2016.
NánarHinn 19. október sl. hélt Ari Páll Kristinsson boðsfyrirlestur við Háskólann í Björgvin, Institutt for lingvistiske, litterære og estetiske studier. Um var að ræða svonefndan Hannaas-fyrirlestur sem einum fræðimanni er árlega boðið að halda.
NánarNý stjórn stofnunarinnar hefur tekið til starfa fyrir tímabilið 2018−2022. Hlutverk stjórnar Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er að vera forstöðumanni til ráðgjafar og veita honum umsagnir um starfsáætlanir og skipulag stofnunarinnar.
NánarNafnfræðifélagið heldur fræðslufund laugardaginn 20. október, kl. 13.15 í stofu 202 í Odda, húsi Háskóla Íslands. Oddgeir Eysteinsson framhaldsskólakennari talar um Hliðstæður í örnefnum á Íslandi og Suðureyjum.
NánarEinar Freyr Sigurðsson hefur verið ráðinn rannsóknarlektor á orðfræðisviði stofnunarinnar.
NánarStofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum var einn af tæplega fimmtíu þátttakendum á Vísindavöku Rannís 2018.
NánarElizabeth Walgenbach hefur verið ráðin til að gegna rannsóknarstöðu Árna Magnússonar til tveggja ára. Hún mun rannsaka lagahandrit fjórtándu aldar og þá sérstaklega kristinrétt Árna Þorlákssonar.
NánarNafnfræðifélagið heldur fræðslufund laugardaginn 22. september 2018, kl. 13.15 í stofu 202 í Odda, húsi Háskóla Íslands. Aðalsteinn Hákonarson, verkefnisstjóri á nafnfræðisviði Árnastofnunar, flytur fyrirlestur sem hann nefnir: „og volsa mikið í veröldinni, en vita hvorki á né b“. Úr sögu íslensku bókstafanafnanna
Nánar