Skip to main content

Pistlar

Mjóafjarðarskessan

Hér má heyra Guðmund Kristinn Davíðsson lesa söguna.

 

MJÓAFJARÐARSKESSAN

Fyrir framan Fjörð í Mjóafirði er gil eitt sem kallað er Mjóafjarðargil. Þar hafðist fyrr meir við skessa sem síðan hefur verið kölluð Mjóafjarðarskessa, og var hún vön að seiða til sín í gilið prestana frá Firði.

Gjörði hún það á þann hátt að hún fór til kirkjunnar þegar presturinn var uppi í stólnum og brá til annarri hendinni fyrir utan stólsgluggann. Urðu prestarnir þá ærir og sögðu:

Takið úr mér svangann og langann.
Nú vil ég að gilinu ganga.
Takið úr mér svilin og vilin,
fram ætla ég í Mjóafjarðargilið.

Hlupu þeir að svo mæltu út úr kirkjunni fram að gilinu og sagði ekki af þeim úr því.

Eitt sinn fór ferðamaður um gilið og sá fyrir ofan sig skessuna þar sem hún sat á klettasnös og hélt á einhverju í hendinni.

Kallaði hann þá til hennar og mælti: "Á hverju heldur þú þarna, kerling mín?"

"Ég er nú að kroppa seinast um hauskúpuna af honum síra Snjóka," mælti skessan.

Sagði maðurinn tíðindi þessi og þóttu þau ekki góð. Prestarnir fóru þannig hver á fætur öðrum og til vandræða horfði því prestar urðu tregir til að fara að Firði þegar þeir vissu hver meinvættur var í gilinu.

Þar kom loksins að enginn ætlaði að fást. En þá bauðst prestur nokkur til að fara þangað þó honum væri ekki ókunnugt hver vogestur var í gilinu.

Áður en hann messaði í fyrsta sinn í Firði var hann búinn að leggja undir við menn sína hvað þeir skyldu taka til bragðs ef að þeir sæju að nokkurt fát kæmi á sig í stólnum.

Hann sagði svo fyrir að sex skyldu þá hlaupa á sig og halda sér, aðrir sex skyldu hlaupa að klukkunum og hringja þeim en tíu skyldu hlaupa á hurðina. Jafnframt valdi hann þá menn er þetta skyldu gjöra hvað um sig.

Þegar er presturinn var kominn upp í stólinn kom höndin upp á gluggann og iðaði fyrir utan hann, ærðist þá prestur og mælti: Takið úr mér svangann og langann o.s.frv.

Síðan ætlaði prestur að hlaupa út en þá stukku þeir sex sem til þess voru kvaddir á hann og hinir sex hringdu klukkunum og hinir tíu hlupu á hurðina.

Þegar skessan heyrði til klukknanna tók hún til fóta. Stökk hún á kirkjugarðinn og sprakk stórt skarð í garðinn undan fæti hennar og mælti hún þá: "Stattu aldrei."

Skessan hljóp fram í gilið og hefur ekki orðið vart við hana síðan. En síðan hefur aldrei tollað í skarði því er skessan sté í kirkjugarðinn hversu vel sem það hefur verið hlaðið.

Hermann nokkur bóndi í Firði, dáinn um 1830, kvaðst muna eftir járnskó skessunnar sem fallið hafði af henni þá er hún sté skarðið úr garðinum; var skórinn hafður fyrir sorptrog.

 
Birt þann 3. október 2019
Síðast breytt 24. október 2023
Heimildir

Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri. Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson sáu um útgáfuna. Reykjavík: Bókaútgáfan Þjóðsaga, 1961, I, 146–147.