Skip to main content

Glíman við orðin: Ritgerðasafn

Útgáfuár
2013
ISBN númer
9789979654254 388
Glíman við orðin er úrval ritgerða eftir Guðrúnu Kvaran og er gefin út í tilefni sjötugsafmælis höfundar sumarið 2013. Í bókinni eru nítján greinar sem sýna fjölbreytt viðfangsefni Guðrúnar: orðfræði, orðsifjar, nafnfræði, biblíumál og sögu íslenskrar málfræði. Að bókarlokum er ritaskrá höfundar.

Guðrún Kvaran lauk cand. mag.-prófi í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands árið 1969 og doktorsprófi í indóevrópskri samanburðarmálfræði við háskólann í Göttingen í Þýskalandi árið 1980. Hún starfaði við Orðabók Háskólans um áratugaskeið sem sérfræðingur, síðar forstöðumaður hennar og prófessor við hugvísindasvið Háskóla Íslands. Guðrún hefur verið formaður Íslenskrar málnefndar undanfarin ár.

Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 86).
Kaupa bókina