Skip to main content

Gripla XXIV

Útgáfuár
2013
ISBN númer
978-9935-23-027-7
Ritstjórar: Jóhanna Katrín Friðriksdóttir og Viðar Pálsson.

Í þessu nýjasta hefti er sem fyrr að finna áhugavert efni, níu fræðigreinar auk samtínings: Russell Poole skrifar um alþjóðlegt samhengi dróttkvæða, Stephen Pelle fjallar um heimildir fyrir norrænum hómilíum, Kirsten Wolf gefur út tvær dæmisögur ásamt skýringum, Þorgeir Sigurðsson, Guðvarður Már Gunnlaugsson og Haukur Þorgeirsson skoða skaddað blað í Möðruvallabók í nýju ljósi, Margrét Eggertsdóttir og Veturliði G. Óskarsson gefa út forvitnileg bréfaskipti Grunnavíkur-Jóns og Eggerts skálds Ólafssonar ásamt skýringum, Arngrímur Vídalín er á jaðrinum í Hrafnistumannasögum, Katelin Parsons gefur út Grýlukvæði úr Sléttuhlíð með ítarlegri skýringarsögu, Silvia Hufnagel gerir grein fyrir fræðaumhverfi alþýðufræðimannsins Gunnlaugs Jónssonar frá Skuggabjörgum og Veturliði ritar einnig smágrein um stakorð í Flateyjarbók.

Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 87).