Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegum sumarskóla í íslenskri tungu og menningu 29. júní–22. júlí. Sumarskólinn verður haldinn bæði í Reykjavík og sem fjarnámskeið á netinu. Hann er ætlaður stúdentum í tungumála- og bókmenntanámi en aðrir sem áhuga hafa á íslensku nútímamáli og menningu eiga þess kost að sækja námskeiðið.
Í ár er alþjóðlegur sumarskóli 40 ára.
2026-06-29T09:00:00 - 2026-07-22T17:00:00