Skip to main content

Viðburðir

Grettis saga og handrit hennar í Uppsalabókasafni

DG 10. Grettis sögu handrit frá 16. öld.
SSJ

Veturliði Óskarsson flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum í fyrirlestrasal Eddu.

Í erindinu verður einkum hugað að einu af elstu handritum Grettis sögu, skinnhandriti frá um 1500 sem varðveitt er í háskólabókasafninu í Uppsölum.

Þetta handrit er einmitt á handritasýningunni í Eddu og er eitt fimm merkilegra handrita sem fengin voru að láni frá Uppsölum og Stokkhólmi síðastliðið vor.

Veturliði hyggst rekja sögu handritsins og segja frá skrifara þess um leið og hann rifjar svolítið upp efni Grettis sögu.

Viðburður á Facebook.

2026-09-12T13:00:00 - 2026-09-12T14:00:00