Skip to main content

Viðburðir

Hvert er hlutverk bókmenntasafna og framtíð þeirra?

Málþing á vegum samtaka bókmenntasafna og -setra

Málþingið verður haldið í bókasal Eddu 26. mars kl. 14 í kjölfar aðalfundar samtakanna.

Þar munu eftirtalin flytja erindi:

  • Skúli Björn Gunnarsson, fyrrum forstöðumaður Gunnarsstofnunar
  • Ólafur J. Engilbertsson, sýningahönnuður og sagnfræðingur
  • Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta

Að erindum loknum verða umræður og kaffiveitingar. 

Allir velkomnir.

Málþingið verður tekið upp og því deilt síðar.

2026-03-26T14:00:00 - 2026-03-26T15:00:00