Skip to main content

Viðburðir

Málþing um kynhlutlaust mál

30. apríl
2022
kl. 13–16.30

Veröld - hús Vigdísar
107
Ísland

Undanfarin ár hefur skapast mikil umræða í íslensku samfélagi um kyn og hvernig félagslegar hugmyndir um kyn endurspeglast í íslensku máli, ekki síst frá málfræðilegu sjónarhorni. Þá hafa einnig orðið breytingar og tilbrigðum hefur fjölgað í notkun málfræðilegs kyns í máli fólks en æ fleiri málhafar reyna nú að færa mál sitt meira í átt til kynhlutlausara máls á einn eða annan hátt. Þessi þróun er að mestu leyti sprottin úr grasrótinni, enda tengist hún réttindabaráttu m.a. kvenna og jaðarsettra hópa, en í umræðu dagsins í dag birtast alls konar sjónarmið hinna ýmsu samfélagslegu hópa um efnið. Innan fræðasamfélagsins er einnig fjallað um kynhlutlaust mál frá ólíkum sjónarmiðum en sú fjölbreytilega umfjöllun hefur ekki endilega skilað sér til almennings eða út í samfélagsumræðuna. Hópur málfræðinga við Háskóla Íslands, sem er í þann mund að stofna Rannsóknastofu um félagsmálvísindi, og Íslensk málnefnd tóku höndum saman í byrjun ársins 2022, með það markmið að opna fræðilega umræðu um kynhlutlaust mál fyrir almenningi. Fyrsta skrefið í átt að þessu markmiði er að halda málþing um kynhlutlaust mál þann 30. apríl 2022 þar sem boðsfyrirlesarar úr íslensku fræðasamfélagi kynna rannsóknir sínar og miðla þekkingu sinni um efnið frá ólíkum sjónarhornum.

 

Dagskrá

Opnun málþingsins – Eiríkur Rögnvaldsson

1. Guðrún Þórhallsdóttir – Hvað er kynhlutleysi? Sjónarmið, röksemdir, hugtök og heiti
2. Finnur Ágúst Ingimundarson – Mál og kyn í ljósi sögu og samtíma
3. Anton Karl Ingason – Hefð, jafnrétti og blandaðar sjálfsmyndir
Hlé í 20 mín.
4. Höskuldur Þráinsson – Hvað eru kynin mörg?
5. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir – „Að berja niður venjulegt málfar meirihlutans í pólitískum tilgangi“
6. Þorbjörg Þorvaldsdóttir – Merking, málfræði og mannréttindi
Umræður

Nánar um erindin

Hér eru upptökur erinda sem voru flutt á málþingi um kynhlutlaust mál þann 30. apríl.

Eiríkur Rögnvaldsson
Guðrún Þórhallsdóttir
Finnur Ágúst Ingimundarson
Anton Karl Ingason
Höskuldur Þráinsson
Hildur Lilliendahl
Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Málþingið er tekið upp og það er jafnframt öllum opið.

Í undirbúningsnefnd málþingsins sitja Anna Sigríður Þráinsdóttir, Eva María Jónsdóttir, Heimir F. Viðarsson og Ingunn Hreinberg Indriðadóttir.

2022-04-30T13:00:00 - 2022-04-30T16:30:00