Reglulega er skipt um handrit á sýningunni Heimur í orðum. Fimm íslensk handrit úr sænskum söfnum verða til sýnis á tímabilinu 12. maí til 8. nóvember.
Tvö koma úr Háskólabókasafninu í Uppsölum: Uppsala-Edda, sem er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu, og Grettis sögu handrit frá 15. öld. Hin þrjú koma úr Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi: Íslenska hómilíubókin, sem er eitt elsta handrit sem varðveist hefur frá Íslandi; Bergsbók, glæsilegt handrit sem geymir sögur konunganna Ólafs Tryggvasonar og Ólafs helga auk kveðskapar; Codex Sparfvenfeldianus, sem er merkilegt edduhandrit frá 17. öld.
Í tilefni af handritaskiptunum verður vegleg dagskrá í Eddu. Nánar auglýst síðar.
2026-05-12T10:00:00 - 2026-05-12T17:00:00