Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands annast skipulagningu á árlegu fjögurra vikna námskeiði í íslensku fyrir um 26 norræna stúdenta sem fram fer í Reykjavík 1.–25. júní. Námskeiðið er allt að 10 ECTS og samanstendur af rúmlega 70 kennslustundum. Auk íslenskunámsins hlýða nemendurnir á fyrirlestra um íslenskt samfélag, sögu, bókmenntir og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Nordkurs.
2026-06-01T09:00:00 - 2026-06-25T17:00:00