Skip to main content

Viðburðir

Ráðstefna um vesturíslenskt mál og menningu

2. desember
2015
kl. 09–17
Þjóðminjasafn Íslands. Mynd í eigu Þjóðminjasafnsins.

Ráðstefna: Vesturíslenskt mál og menning
Miðvikudagur 2. desember
kl. 9:00-17:00
Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands

 

 

Miðvikudaginn 2. desember verður efnt til ráðstefnu um vesturíslenskt mál og menningu.

Ráðstefnan verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og tengist  rannsóknaverkefninu „Mál, mábreytingar og menningarleg sjálfsmynd“ sem hlaut styrk úr Rannsóknasjóði (Rannís).

Ráðstefnan nýtur stuðnings Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Málvísindastofnunar Háskóla Íslands.

Tveir erlendir gestafyrirlesarar verða á ráðstefnunni, þær Angela Hoffman frá Uppsalaháskóla og Karoline Kühl frá Kaupmannahafnarháskóla.

Auk þeirra munu innlendir fræðimenn og háskólanemar flytja fyrirlestra. Þeirra á meðal eru tveir fræðimenn á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Það eru þau Ásta Svavarsdóttir rannsóknardósent sem fjallar um rætur og upphaf vesturíslensku og Úlfar Bragason rannsóknarprófessor sem flytur erindi um varðveislu íslensku í Vesturheimi.

Fyrirlesarar munu haga máli sínu þannig að bæði innlendir og erlendir áheyrendur geti fylgst með.

 

Ráðstefnan er öllum opin. Dagskrána má finna hér.

 

 

2015-12-02T09:00:00 - 2015-12-02T17:00:00