Skip to main content

Viðburðir

Rithöfundar spjalla um sænskar og íslenskar bókmenntir

Í tilefni af því að handritin sem eru í láni frá Svíþjóð og hafa verið til sýnis á sýningunni Heimur í orðum munu brátt halda til síns heima verður efnt til viðburðar í fyrirlestrasal Eddu fimmtudaginn 29. október kl. 15. Þá munu rithöfundarnir Amanda Svensson og Þórdís Gísladóttir bera saman bækur sínar og spjalla um sænskar og íslenskar bókmenntir.

Amanda Sofia Svensson er sænskur rithöfundur. Hún hefur gefið út fimm skáldsögur. Önnur skáldsaga hennar, Välkommen till den här världen, var tilnefnd til August-verðlaunanna í Svíþjóð. Ensk þýðing á fjórðu skáldsögu hennar, A System so Magnificent it is Blinding, var einnig tilnefnd til Warwick-verðlaunanna fyrir konur í þýðingum.

Þórdís Gísladóttir er rithöfundur en auk ritstarfa hefur Þórdís starfað sem bókmenntagagnrýnandi. Hún hefur kennt og flutt fyrirlestra við skóla á Íslandi og erlendis, skrifað greinar í íslensk og erlend blöð og tímarit, gert útvarpsþætti og flutt pistla á RÚV, unnið sem vefritstýra fyrir Norrænu ráðherranefndina og ritstýrt tímaritinu Börn og menning. Þórdís skrifar jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og hefur einnig samið námsefni og útvarpsþætti og skrifað unglingabækur í samstarfi við Hildi Knútsdóttur. Þá hefur hún þýtt fjölda bóka og leikrita, aðallega úr sænsku.

Allir eru velkomnir.

Viðburður á Facebook

 

2026-10-29T15:00:00 - 2026-10-29T16:00:00