Sverrir Jakobsson fjallar um nýtt yfirlitsrit um íslenska síðmiðaldasögu, Skattland, en þar er fjallað um íslensk stjórnmál frá lögtöku Jónsbókar 1281 að staðfestingu siðbreytingarinnar 1551 þegar Ísland var skattland Noregskonungs. Saga konungsvalds á Íslandi fyrstu aldirnar einkennist af þversögnum þar sem Íslendingar höfðu samþykkt að gangast undir konungsvald en héldu jafnframt fast í forn réttindi, lög Ólafs helga, Gamla sáttmála og Jónsbók. Starf konungsfulltrúa á Íslandi var því vandasamt og gat verið hættulegt.
2026-09-24T17:00:00 - 2026-09-24T18:00:00