Skip to main content

Röskun verður á þjónustu Árnastofnunar næstu mánuði. Sjá nánar.

Viðburðir

Vorfundur norrænnar samstarfsnefndar um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis

27.03.2023 - 10:00 to 27.03.2023 - 15:00
Fánar Norðurlanda
Fánar Norðurlanda

Norræn samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis (Samarbetsämnden för Nordenundervisning i utlandet − SNU), sem stofnunin á aðild að, heldur vorfund sinn sem fjarfund á Zoom 27. mars. Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda.

 

Ljósm.: Ramberg, Canva
2023-03-27T10:00:00 - 2023-03-27T15:00:00
Skrá í dagbók
-