Umsóknarfrestur fyrir sumarskóla í handritafræðum
Opið er fyrir umsóknir í sumarskóla í handritafræðum sem haldinn verður 6.–15. ágúst 2024. Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.
Í sumarskóla í handritafræðum fer fram þjálfun í textafræði, handritafræði og ritstjórn, svo fátt eitt sé nefnt en kennsla fer fram á ensku. Sumarskólinn er samstarfsverkefni Árnastofnunar, Háskóla Íslands, Kaupmannahafnarháskóla og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Frekari upplýsingar má finna á ensku á síðu sumarskólans.
Gripla – skilafrestur greina
Skilafrestur á greinum í tímaritið Griplu 2024 er til 1. apríl. Greinar má senda á margret.eggertsdottir@arnastofnun.is.
Gripla er ritrýnt tímarit sem kemur út í desember á hverju ári. Tímaritið er alþjóðlegur vettvangur fyrir rannsóknir á sviði íslenskra og norrænna fræða, einkum handrita- og textafræða, bókmennta og þjóðfræða. Birtar eru útgáfur á stuttum textum, greinar og stuttar fræðilegar athugasemdir (sem eru ekki ritrýndar). Ritdómar um bækur eru ekki birtir í Griplu og heldur ekki þýðingar á miðaldatextum nema þær fylgi útgáfu textans á frummáli. Greinar skulu að jafnaði skrifaðar á íslensku en einnig eru birtar greinar á öðrum norrænum málum, ensku, þýsku og frönsku.
Gripla er skráð í Web of Science™ (Clarivate) og Scopus (Elsevier), og er metin til hæstu stiga (15) innan matskerfis Háskóla Íslands. Aðsendar greinar verða sendar í ritrýni og miðað er við að höfundum verði svarað í júníbyrjun.
Sjá nánari upplýsingar um tímaritið svo og leiðbeiningar um frágang greina.
Umsóknarfrestur um stöðu íslenskukennara í Normandí
Caen-háskóli í Normandí auglýsir stöðu íslenskukennara (f. maître de langue) við háskólann lausa til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. september 2024. Ráðning er tímabundin til þriggja ára með möguleika á endurráðningu til jafnlangs tíma. Krafist er MA-prófs í íslensku eða tengdum greinum. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið kennararéttindanámi og/eða hafi reynslu af því að kenna íslensku sem annað eða erlent mál. Kunnátta í frönsku er nauðsynleg. Nær eingöngu er um íslenskukennslu að ræða á BA-stigi en umsækjendur þurfa einnig að geta kennt íslenskar bókmenntir og fjallað um íslenskt samfélag. Æskilegt er að umsækjendur hafi búið á Íslandi undanfarin ár. Mögulegt er að stunda framhaldsnám við skólann með kennslu.
Umsóknir, sem greini frá námi og störfum umsækjenda, ásamt skýrslu um ritsmíðar og rannsóknir, skal senda í tölvupósti til verkefnisstjóra, Branislav Bédi (branislav.bedi@arnastofnun.is), fyrir 2. apríl 2024.
Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri í gegnum tölvupóst eða í síma (525 4421).
Umsóknarfrestur um stöðu rannsóknarlektors
Starf rannsóknarlektors við menningarsvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er laust til umsóknar. Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknarlektornum er ætlað að sinna rannsóknum á íslenskum miðaldabókmenntum, varðveislu þeirra og menningarlegu samhengi. Þá þarf hann að taka þátt í þeim verkefnum sem unnið er að á menningarsviði, svo sem útgáfu texta, fræðilegri ritstjórn og skráningu handrita og fornbréfa, auk stjórnunar og miðlunar þekkingar til fræðimanna, stúdenta og almennings.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á rannsóknarsviði stofnunarinnar. Ætlast er til að þeir geti með námsferli sínum, starfsreynslu og ritverkum sýnt fram á kunnáttu og reynslu til að vinna að rannsóknum og textaútgáfum á sviði íslenskra miðaldafræða og sett íslenskar bókmenntir í samhengi við umhverfi sitt og aðrar evrópskar bókmenntir, m.a. með færni í forn- og/eða miðaldatungumálum.
Góð kunnátta í íslensku máli að fornu og nýju er skilyrði sem og gott vald á talaðri og ritaðri íslensku. Í því felst að umsækjandi hafi móðurmálsfærni / íslenskt stúdentspróf, eða telji íslenskufærni sína samsvara (1) þrepi C2 í færniþættinum Lestur, og (2) þrepunum B2 til C2 í færniþáttunum Samskipti og Ritun, í Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Kunnátta í ensku og dönsku eða öðru norrænu máli er nauðsynleg og frekari tungumálakunnátta er kostur. Gerð er krafa um góða samskiptahæfni. Horft verður til þess að sérsvið og reynsla umsækjenda falli sem best að rannsóknar- og þjónustuþörfum stofnunarinnar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Um er að ræða fullt starf og í því er fólgin 40% rannsóknarskylda.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs.
Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2025 til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri menningarsviðs í síma 525 4024 eða í gegnum tölvupóst gudvardur.mar.gunnlaugsson@arnastofnun.is.
Umsóknir og meðferð þeirra
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og vottorð um námsferil sinn og störf. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir vinna að sem stendur og hver séu áform þeirra um rannsóknarverkefni ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og netföng tveggja einstaklinga sem eru til þess bærir að veita umsagnir um verk þeirra og hæfni.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024.
Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna er farið eftir ákvæðum laga um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 40/2006 og reglugerðar um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 861/2008.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024.