Skip to main content

Fréttir

Greinakall − Orð og tunga 2026

See call for papers in English

Tímaritið Orð og tunga óskar eftir greinum til birtingar í 28. hefti tímaritsins (2026). Frestur til að skila greinarhandritum er til 15. október 2025.

Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út árlega. Birtar eru fræðilegar greinar á íslensku, ensku og norrænum málum sem lúta að málfræði og málnotkun en sérstök áhersla er lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði, nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði.

Hámarkslengd greina er 8.000 orð. Upplýsingar um skil á handritum, frágang o.s.frv. er að finna á vefsíðu tímaritsins. Á síðunni má einnig finna efnisyfirlit og útdrætti eldri árganga.

Með því að senda inn handrit lýsir væntanlegur höfundur sig samþykkan því fyrirkomulagi að greinin verði birt samtímis á prenti og í rafrænni gerð.

Vinsamlegast hafið samband við ritstjóra ef fleiri spurningar vakna.

Ellert Þór Jóhannsson og Jóhannes B. Sigtryggsson ritstjórar
ordogtunga@arnastofnun.is